Fífl gera sig að enn meiri fíflum.


18 ára.

Dave Allen 1936-2005. 


Sunshine.

 


Alþýðulegur maður Ólafur Ragnar, þegar hann tekur sig til.

Hamborgarafabrikkan í gær og Kolaportið í dag.

Bónus á morgun  ?


mbl.is Ólafur Ragnar brá sér í Kolaportið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottinn minn....

Við erum að fara að vinna Evróvisjón.

Alveg eins og árin, 1986 -2011.

Bara getur ekki klikkað núna, með eða án bangsa. 

Perlan, Höllin eða Harpan ? 

 

viking-man.jpg

 

sega_s_viking_freya_by_michaelkutsche.jpg

 

 

 


mbl.is Bangsi fer með í Græna herbergið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsti forseti lýðveldisins sem kosinn verður burt ?

Skjótt skipast veður....

Fyrr í dag flaggaði mogginn glaðbeittur þeirri frétt að Ólafur væri kominn langt fram yfir Þóru með 53% og Þóra með 35% en nú eru þau sem sagt jöfn.

Held þó á endanum, að  Ólafur Ragnar Grímsson verði fyrsti forseti Íslenska lýðveldisins til að hljóta þann vafasama heiður að verða kosinn burt af Bessastöðum og  þurfa að kyngja þeirri auðmýkingu.

Þeir verða þá glæsilegir saman hlið við hlið í  sögubókunum, þar sem væntanlega  allnokkuð mun þurfa að hliðra til fyrir þeim:  Dalai Lama norðursins og ritstjórinn.

Eða öllu heldur, útrásarklappstýran og hrunmeistarinn.

 

 


mbl.is Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrunflokkurinn og lýðræðisástin.

Sjálfstæðismenn  eru á hrikalegum bömmer yfir því að þjóðin skuli nú með lýðræðislegri kosningu fá að taka afstöðu til tillagna stjórnlagaráðs um breytta og bætta stjórnarskrá. 

Er hægt að afhjúpa sitt rétta eðli  á skýrari hátt ?

Skyldi vera að þetta sé það sem þjóðin vill fá til áhrifa á ný ?

 


mbl.is Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta guðsvolaða land.

þegar stefnir í að þau spillingaröfl sem óðu hér eins og engilsprettufaraldur yfir allt þar sem peninga var von en skildu  töpin af gamblinu eftir hjá heimilunum  nái fyrri styrk,  er óhjákvæmilegt annað en að maður fyllist viðbjóði.

Hins vegar þegar við bætist að ekki er lengur hægt að treysta réttarkerfi og lögrelgu varðandi rannsóknir á efnahagsbrotum tengdum hruninu, þá er lítið eftir til að byggja á í þessu guðsvolaða landi.

corruption.jpg

 


mbl.is Kærðir vegna brots á þagnarskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki Evróvisjón, heldur tær Íslensk snilld.


Ekki að undra.

Lái ekki  þeim sem flýja þingsal þegar þessi frauka eða Birgir Ármannsson hefja mæðurulluna.

Ekki heldur eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi  blásið til áheyrilegrar eða málefnanlegrar umræðu undanfarna daga og ættu því  að drullast til þess að skammast sín fyrir málþófið.

Það fer ekkert framhjá fólki hvernig og af hvaða hvötum hrunflokkurinn hefur  lagt allt í að troða niður lýðræðið þegar kemur að því að þjóðin fái að taka afstöðu til breyttrar stjórnarskrár.   

Annars fær Ragnheiður alveg prik fyrir þennan sérstaka innlifaða píslarvottasvip sem hún  setur upp í ræðustól.  

Minnir  á særðan rakka  sem búið er að taka beinið frá. 

 


mbl.is „Ræðum við tóman sal og við hvort annað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband